Kötturinn

http://pgh.pjetur.net/images/cat/bl-cat.jpg

http://pgh.pjetur.net/images/cat/mf-cat.jpg

Allar myndir hér eru af notuðum (stundum svolítið tættum) flugum

Uppskriftin:

  • Öngull Tvíkrækja (Partridge P-10.. P-6), Einkrækja, Streamer 10 - 4 (Mustad 79580)
  • Stél Tvinnaður marglitur tinsel Madeira-370/375 (luraflash, silfur/blár)
  • Búkur Svart Bucktail/Kálfshali/Geitahár/íkornahár
  • Haus Tilbúin augu (micro) eða keðja
  • Tvinni Sami litur og á búk

(Madeira garn fæst í Nálinni Laugavegi 8. Kíkið þar við og ræðið við hana Ingveldi um ýmislegt garn til fluguhnýtinga, þar leynist ýmislegt sniðugt)

http://pgh.pjetur.net/images/cat/cat1.jpg
Hnýtið fyrst marglitan samofinn þráð á öngulinn.

http://pgh.pjetur.net/images/cat/cat2.jpg
Yfir þennan þráð er lagður hárvöndull af heppilegri stærð. Ýmislegt kemur hér til greina, upprunalega var þetta bucktail en síðar kálfshár (þau eru úfnari). Athugið að ekki á að hnýta niður endan, aðeins framarlega um miðjuna og ekki stokka hárin. Þannig verður stélið úfið og fyrirferðarmikið.

http://pgh.pjetur.net/images/cat/cat3.jpg
Hnýtið augað fast og festið með lakki..

http://pgh.pjetur.net/images/cat/cat4.jpg
Hárin sem stóðu langt fram eru nú lögð aftur yfir augað (Mest yfir augað, en svolítið undir) og bundin niður fyrir aftan augað. Lakkað vel. Samofni þráðurinn er rakinn upp og blandað inn í stélhárin. Ef kötturinn er ekki með nein veiðihár má rista grunnt með rakvélablaði eða beittum hníf framan við augað til að fá nokkur veiðihár.

Kötturinn er tilbúinn!!!

Það er tvennt sem einkennir þessa flugu frá öðrum.

  • Í fyrsta lagi er það að hnýta ekki niður afturhárin (og gera grannan búk, líkt og Thunder Creek sílin), Flugan fær þá á sig feitan afturbúk líkt og Francis flugurnar.
  • Í öðru lagi er það augun og þyngingin sem í því felst, sbr. Dog Nobbler (oftast eru augun máluð á þessar flugur (sbr. Thunder Creek) ).

Þessa flugu má auðvitað hnýta í fleiri litum, svarta, orange hef ég prufað og reynst vel en allt kemur hér til greina.

Upphaflega var þessi fluga hnýtt á tvíkrækju og fer ákaflega vel þannig, falleg og góð hlutföll. Einnig hefur hún verið hnýtt á einkrækju (lítinn streamer) og hefur reynst feikn veiðin þannig líka.

Auðvitað á að halda áfram að spinna við köttinn, hnýta kettlinga, bröndótta ketti, eineygða ketti ,einfætta ketti, villiketti, læður og fressketti...

Fleiri útgáfur.

http://pgh.pjetur.net/images/cat/usd-bcat.jpg
Einkrækja á hvolfi (straumfluga) - Bucktail

http://pgh.pjetur.net/images/cat/mf-cat.jpg
Mickey finn útgáfa - Gult-Rautt-Gult - Kálfshali

http://pgh.pjetur.net/images/cat/blo-cat.jpg
Bloody cat - Rautt millilag - Kálfshali

http://pgh.pjetur.net/images/cat/bl2-cat.jpg
Svartur Með silfruðum búk - Búkur Madeira 9816 - Kálfshali

Hvernig kötturinn varð til.

Það var nokkrum dögum fyrir veiðitúr í Laxá í Laxárdal haustið 1996, að ég settist niður til að hnýta nokkrar flugur. Ég ætlaði að hnýta bjöllulíki sem ég hafði heyrt að gengi vel í Laxá á vandláta fiska. Bjöllulíkið var þannig hnýtt að bucktail var hnýtt niður, endarnir lausir snúa fram og síðan lagt aftur yfir og snyrt að framan. Ég brá þræðinum á og hnýtti niður hárvöndul, lagði hárin aftur yfir, hnýtti og sá þá að þetta var auðvitað alveg kolvitlaust, snéri allt í öfuga átt. En bíddu nú við, þetta var ekki svo vitlaus fluga, bætum við augum og setjum svolítið glitrandi inn á milli stélháranna... flugan var fædd.
Þegar hún lá þarna frágengin á borðinu hjá mér, kom sonur minn til mín leit á verkið og sagði, "Pabbi þetta er eins og lítill köttur". þá var líka nafnið komið!

Veiðisögur

Þessi fluga hefur þrátt fyrir ungan aldur getið sér ótrúlega gott orð í veiði

Þessi fluga var reynd í fyrsta sinn í Laxá í Laxárdal. Ég brá henni undir fyrir hádegi í Bárnavík og allt í einu voru fiskar á báðar hendur, litlir að vísu og fengu allir líf. Þarna var ekkert bitastætt að hafa og ekkert vit í að kvelja smáfiskana, höldum í mat. Eftir mat átti ég Birningstaði og hugsaði nú fallega til stórfiskana í Soginu. Við fórum seint úr húsi, langt liðið á veiðitímann. Konan kastaði í Sogið, en ég fór upp fyrir hornið og ætlaði að veiða mig rólega inn í víkina - enn með fluguna á síðan fyrir hádegi. Í fyrsta kasti BÚMM... stórfiskur á dansandi um flóann, vá maður! þegar hann var rétt að koma í háfinn (7pd a.m.k.) rykkti hann sér lausum og fór með fluguna, úff, jæja hér dugir ekkert víl, setjum aðra flugu undir og sterkari taum, köstum aftur. BÚMM... annar á dansandi um flóann, eftir dágóða stund og mikinn hjartslátt veiðimanns var hann kominn í pokann (5pd), Köstum aftur, BÚMM... enn einn dansaði á vatninu og í pokann stuttu síðar. Aftur kastað, BÚMM... hverskonar kvikindi er þetta sem ég hef búið til, hugsaði ég, og minntist vísunnar hanns Muggs, "Skrattinn fór að skapa mann/...". Þegar þessi var kominn á land var flugan alveg búin að vera, tætt og rifin og engu lík. Ég gerði þá það sem ég hef aldrei gert fyrr né síðar, Rölti heim í hús til að hnýta köttinn, hnýtti nokkrar og síðan aftur niður að á. Nú lá ekkert á, góð veiði komin í pokann, við hjónin ákváðum að kasta aðeins í Árgilstaðaflóann og koma aftur í Sogið seinna um kvöldið til að ljúka góðum degi. Þar hélt ég áfram uppteknum hætti, missti einn stórann og sleppti nokkrum litlum. Í lok dagsins rölti ég út af Ullarnefinu og tók þar einn í pokann. Þessi fluga yrði sett undir aftur!

Heiðar Rafn Harðarson var í vor (1997) í merkingatúr í Grenlæk á vegum Ármanna. Morguninn gekk hálf illa, lítið veiddist og menn voru bara að tína upp einn og einn. Hann leit í boxið og sá þar köttinn hnýttan á lítinn streamer, - það má prufa þetta, og undir fór hún. Það skal ekki orðlengt frekar en hann reif upp 15 fiska í beit, og þótti mönnum hann þá búinn að veiða nóg, en aðrir í kringum hann fengu varla töku. Þegar Heiðar kom heim hringdi hann í mig og sagði, "Pjetur, í dag var dagur kattarinns", - "Nú verður þú að fara að ákveða hvort þetta verður vel geymt leyndarmál, eða setja uppskriftina á netið". Hér er hún komin.

Hún var vel reynd Grenlæk, nú í vor var yfir helmingur fiskanna í fyrsta holli skráður á þessa flugu urriði, birtingur og bleikja. Það þótti okkur efirtektarvert að að yfirleitt var flugan kokgleypt, langt ofan í maga, ekki í kjaftvikin eins og oft er. Þetta þýddi í okkar augum að fiskurinn var aldrei í vafa þegar hann sá þessa flugu, hún var étin.

Ekki ætla ég að sækja um einkaleyfi á þessari flugu, og krefja ykkur um afnotagjöld, en bið ykkur kæru félagar að hugsa vel til mín ef vel veiðist á fluguna. Þegar þið sitjið á bakkanum, horfið yfir ána að loknum veiðidegi og skálið í góðu kaffi. Sendið mér þá eina góða veiðisögu!

Ein lítil veiðisaga:

Ég stoppaði dagstund í Selá í Steingrímsfirði í boði tengdaföður míns, leitaði þar eftir bleikju. Í ósnum var ekkert líf, en þegar ég kom upp að húsi í Ösku(hauga)hyl sá ég fisk vaka. Með köttinn undir (Mickey Finn útgáfa) kastaði ég þar sem fiskurinn var að vaka og ein væn bleikja tók með það sama, síðan ekki meir.... Það var alveg sama hvað ég bauð honum ekkert vildi fiskurinn.
Það hlaut að vera eitthvað sem hann tæki, hann var enn að vaka og þeir voru allavega fjórir í hylnum til viðbótar. En ekkert gekk, að lokum settist ég á bakkann, starði á ána, hugsaði mín mál og sagði við son minn,
"Stökktu nú upp í bíl strákur og náðu í stóra boxið hans föður þíns!".
Þar hlaut að vera eitthvað sem hann vildi, þetta var bara spurning um þolinmæði. - Þegar strákurinn kemur segi ég við hann.
"Hvað ætti ég nú að setja undir núna?".
Hann velur strax stórann svartann kött.
"Nei þetta er allt of stórt og langhært, ég er alveg hættur að hnýta þá svona langhærða, þeir narta bara í skottið en taka ekki almennilega".
- "Jú svona stór svartur köttur er örugglega hin mesta ólukka fyrir fiskana, þegar hann syndir fyrir framan þá".
"Jæja þá", hugsa ég - "ekki verri fræði en hver önnur!"
Setti þetta undir og viti menn, um leið og hann snerti vatnsflötinn tók bleikjan! Og stuttu síðar lágu þrjár bolta-bleikjur í viðbót á bakkanum (í beit )! Í fjórða kasti tók enginn fiskur og ég þakkaði fyrir mig í þetta sinn, settist og horfði ánægður yfir ána.
Svo segja menn að stærðin skipti ekki máli!

Eftir 1997.

Þegar þetta er skrifað í byrjun árs 1998 hef ég fengið þær góðu fréttir að kötturinn var næst veiði-hæsta fluga á 4. svæði í Grenlæk 1997.
En ég hef frá fleiru að segja. Þessi fluga var reynd í ýmsum ám og vötnum árið 1997 og gaf góða veiði á mörgum stöðum. Gul með rauðu millilagi (Mickey Finn útgáfa) gaf góða bleikjuveiði í margri á. Bloody útgáfa þ.e.a.s. rautt millilag (Svart Rautt Svart) gaf líka vel.

Ég leit við í tvo tíma á Hofstaðasvæði í Laxá í Mývatnssveit síðla sumars, ég hafði aldrei veitt þar fyrr en náði fimm fiskum og setti 3 í pokann.

Einn kunningi minnn hringdi í mig og sagðist hafa veitt lax á köttinn (einn á köttinn og annan á frances), það má því prufa þetta í laxinn líka!?

<br class="giImageBlock-clear-both" />